Heiti námskeiðs
Stafræn gjá eða upplýsingasamfélag fyrir alla?

Braut/námsleið/kjörsvið
Framhaldsdeild, Uppeldis- og menntunarfræði – upplýsingatækni og miðlun[1]

Tegund námskeiðs (grunnnámskeið, skyldunámskeið, valnámskeið)
Valnámskeið

Misseri
Vor

Stærð námskeiðs í einingum
5 (10 ECTS)

Hámarksfjöldi nemenda:

Forkröfur

Námskeiðslýsing

Markmið:

Nemendur:

  • geti greint mismunandi aðstæður hópa, ríkja og landsvæða til að taka þátt í þekkingarsamfélagi nútímans
  • þekki til erlendra og innlendra þróunarverkefna og áætlana sem miða að því að auka þátttöku allra í upplýsingasamfélaginu og brúa stafræna gjá milli hópa
  • geti undirbúið, skipulagt og þróað leiðir sem miða að því að auka menntun og möguleika hópa sem standa höllum fæti í þekkingarsamfélaginu

Inntak, viðfangsefni og vinnulag:
Á þessu námskeiði verður sjónum beint að einstaklingum og hópum sem standa höllum fæti í upplýsingasamfélagi s.s. vegna fötlunar, búsetu, uppruna, aldurs, kynferðis, eða þjóðfélagsstöðu. Fjallað verður um hvernig bæta má aðgengi og auka þátttöku slíkra hópa í upplýsingasamfélagi. Nemendur vinna verkefni þar sem þeir greina aðstæður m.t.t. aðgengis og/eða þróa og gera áætlun um leiðir sem stuðla eiga að auknum möguleikum einstaklinga eða hópa til menntunar og starfa. Um gæti verið að ræða íslenskt eða alþjóðlegt verkefni. Námskeiðið er skipulagt með fjarnámssniði en einnig er gert ráð fyrir staðbundinni lotu og vinnu á vettvangi.

Námsmat:
Nemendur vinna að rannsóknar- og/eða þróunarverkefni sem þeir velja/skipuleggja í samráði við leiðbeinanda (60%). Námsmat byggir einnig á fræðilegri umfjöllun (framlög á Neti t.d. umræðuframlög, innlegg í þekkingarbanka, skrif í leiðarbók, framvinduskýrslur) (40%).



[1] Ath. áður nefnt tölvu- og upplýsingatækni